100 daga áætlun ríkisstjórnarinnar og efndir
Sjá bloggfærsluna: 100 dagar - tilraun í „opnu aðhaldi“
204 dagar frá lokum 100 daga tímabils
4 verkefnum af 48 enn ólokið
- #1. Forsendur fjárlaga 2010 og áætlun í ríkisfjármálum til millilangs tíma afgreidd í ríkisstjórn.
- #2. Skýrsla vegna áætlunar í ríkisfjármálum 2009 og áætlunar til millilangs tíma lögð fram á Alþingi.
- #3. Ákvörðun um eigendastefnu og eignarhald bankanna tekin í ríkisstjórn.
- #4. Endurmat á aðgerðaáætlun vegna skuldavanda heimilanna.
- #5. Átak í kynningu og efldri þjónustu vegna greiðsluvandaúrræða fyrir heimili í skuldavanda.
- #6. Þingsályktunartillaga vegna umsóknar Íslands um ESB lögð fram á Alþingi.
- #7. Endurskoðun hafin á fiskveiðistjórnunarkerfinu.
- #8. Frumvarp um handfæraveiðar smábáta yfir sumartímann lagt fram á Alþingi.
- #9. Lokið skal mikilvægum samningum til lausnar vegna erlendra eigenda krónubréfa.
- #10. Lokavinna við samninga um erlendar kröfur - Icesave.
- #11. Lokavinna við samninga um erlend lán við vinaþjóðir.
- #12. Ná samkomulagi við aðila vinnumarkaðarins um stöðugleikasáttmála.
- #13. Frumvarp lagt fram á Alþingi um aðgerðir gegn skattundanskotum.
- #14. Fyrsta úttekt AGS vegna efnahagsáætlunarinnar afgreidd í stjórn AGS.
- #15. Ákvörðun tekin um framtíðareignarhald nýju bankanna og mögulegt erlent eignarhald.
- #16. Samkomulag milli nýju bankanna og kröfuhafa erlendu bankanna afgreitt.
- #17. Dregið úr gjaldeyrishöftum.
- #18. Frumvarp um persónukjör lagt fram á Alþingi.
- #19. Frumvarp lagt fram á Alþingi um ráðgefandi stjórnlagaþing sem kosið verði til samhliða sveitarstjórnarkosningum 2010.
- #20. Frumvarp um þjóðaratkvæðagreiðslur lagt fram á Alþingi.
- #21. Endurskoðun á reglum um fjármál stjórnmálaflokka hafin.
- #22. Endurskoðun hafin á upplýsingalögum í því augnamiði að auka aðgengi almennings og fjölmiðla að upplýsingum stjórnarráðsins.
- #23. Frumvarp um eignaumsýslufélag lagt fram á Alþingi.
- #24. Frumvarp um breytingu á lögum um sparisjóði lagt fram á Alþingi.
- #25. Gripið til viðeigandi aðgerða til að lækka hæstu laun hjá ríkinu og félögum á þess vegum með það að leiðarljósi að enginn verði með hærri laun en forsætisráðherra.
- #26. Frumvarp um breytingar á stjórnarráði Íslands lagt fram á Alþingi.
- #27. Frumvarp lagt fram á Alþingi um að breyta lögum um LÍN þannig að ekki verði lengur krafist ábyrgðarmanna.
- #28. Nýjar reglur um nefndarþóknanir, risnu og ferðakostnað samþykktar af ríkisstjórn.
- #29. Ný yfirstjórn ráðin í Seðlabanka Íslands.
- #30. Lokið við efnahagsreikninga nýju bankanna og þeir endurfjármagnaðir.
- #31. Lokið við endurfjármögnun og -skipulagningu sparisjóða sem óskað hafa eftir stofnfjárframlagi frá ríkinu.
- #32. Samráðsvettvangur ríkisstjórnar, sveitarfélaga, landbúnaðarins og aðila vinnumarkaðarins settur á fót.
- #33. Byrjað verði að móta atvinnustefnu í samvinnu við aðila vinnumarkaðarins og háskólasamfélagsins. Meðal markmiða sé að Ísland verði meðal 10 samkeppnishæfustu landa heims árið 2020.
- #34. Viðræður hafnar við lífeyrissjóði og innlenda fjárfesta um að að koma að eflingu atvinnulífs með hinu opinbera.
- #35. Tillögur að nýju almannatryggingakerfi lagðar fyrir ríkisstjórn.
- #36. Nýjar útlánareglur afgreiddar hjá LÍN.
- #37. Hafin vinna við mótun heildstæðrar orkustefnu. Stefnan miði m.a. að því að endurnýjanlegir orkgjafar leysi innflutta orku af hólmi.
- #38. Sett á fót tekjustofnanefnd sem hafi það hlutverk að vinna tillögu um breikkun og styrkingu tekjustofna sveitafélaga.
- #39. Náttúruverndaráætlun til ársins 2013 lögð fram á Alþingi.
- #40. Ráðgefandi hópur útgerðarmanna og sjómanna um veiðiráðgjöf og nýtingu sjávarauðlinda og ástands lífríkis sjávar skipaður.
- #41. Vinna hafin við mótun sóknaráætlana fyrir alla landshluta til eflingar atvinnulífs og lífsgæða til framtíðar.
- #42. Vinna hafin við mótun menningarstefnu til framtíðar í samráði við listamenn.
- #43. Efld úrræði Vinnumálastofnunar og Nýsköpunarmiðstöðvar til að bregðast við atvinnuleysi.
- #44. Frumvarp um bætt umhverfi sprota og nýsköpunarfyrirtækja lagt fram á Alþingi.
- #45. Átak til að fjölga sumarstörfum og nýjum atvinnutækifærum fyrir ungt fólk.
- #46. Sparnaðarátak í ríkiskerfinu með þátttöku starfsmanna, stjórnenda og notenda þjónustunnar sett í gang.
- #47. Vinna hafin við gerð yfirlits um stöðu og þróun lykilstærða í samfélags- og efnahagsmálum þjóðarinnar og framtíðarvalkosti.
- #48. Stöður bankastjóra ríkisbankanna auglýstar lausar til umsóknar.
Twitter: @100dagar
Ef þið teljið að einhverju ofangreindra atriða sé lokið, vinsamlega sendið tölvupóst á hundrad.dagar@gmail.com